Sjómannahelginni lauk á Sunnudagskvöldinu 06.06.2010 og gekk hún von framar.
Við hjá Stakkavík erum mjög ánægð með þessa frumraun okkar
og erum við vel spennt fyrir því að gera þetta aftur að ári liðnu.
Frábær helgi yfirstaðin
Sjóarinn Síkáti!

Sjóarinn Síkáti - Dagskrá : www.grindavik.is/sjoarinnsikati
Verið hjartanlega velkomin og Góða skemmtun! 
Stakkavík fékk skemmtilega heimsókn í sumarblíðunni!
Hressir og kátir krakkar í 4. Bekk Grunnskóla Grindavíkur kíktu í heimsókn.
Mikil spenna var í hópnum en um 50 börn mættu.

Grindavík er ein af Íslandsperlunum
Um síðustu helgi var opnuð ferðasýningin Íslandsperlur í Perlunni. Að sýningunni stóðu markaðsstofur landshlutanna í ferðaþjónustu, Ferðaþjónusta bænda, Opinn landbúnaður og Beint frá býli. Á sýningunni var gestum boðið að
ganga hringinn í kringum landið og fá smjörþefinn af því besta sem ferðalöngum stendur til boða í sumar. Suðurnesin voru með einn bás og vakti hann talsverða athygli.
Það var mikill straumur fólks í gegnum básinn en þar voru Grindvísk ferðaþjónustufyrirtæki afar áberandi. Vakti Stakkavík mikla og jákvæða athygli fyrir framlag sitt "Xperience Fish". Leiðsögumenn eru einnig mjög spenntir enda um algjöra nýjung að ræða í ferðamálabransanum.
Myndin var tekin í Suðurnesjabásnum.
Eldgosið hefur líka áhrif á fiskvinnslu

Gosið hefur áhrif víða í heiminum!
Stakkavík hefur líka fundið fyrir áhrifum þess og í gær var fyrsti virki frí dagurinn á árinu.
Fiskvinnslan hefur einnig legið niðri í allan dag því ekki er hægt að flytja fisk úr landi.
En stærsti hluti af okkar afurðum eru fluttar úr landi með flugi!

Heillandi heimur fisksins

Hjá Stakkavík mætast fiskiðnaður og ferðaþjónusta.
Ferðamenn mjög spenntir að kynnast fiskiðnaði.
Við vorum að bæta starfsmannaaðstöðuna og sú hugmynd kviknaði í kjölfarið að byggja í leiðinni sal sem gæti tekið 60 manns í sæti, og frá þessum sal liggur síðan útsýnispallur þar sem hægt er að fylgjast með allri vinnslunni,“ segir Hermann Ólafsson framkvæmdastjóri um spennandi ferðaþjónustutengt verkefni hjá fiskvinnslufyrirtækinu Stakkavík í Grindavík.
