Click on the slide!

Xperience Fish

Xperience Fish

Take A Trip To Icelandic Fishery Culture

Meira...
Click on the slide!

Xperience Fish

Xperience Fish

Take A Trip To Icelandic Fishery Culture

Meira...
Frontpage Slideshow (version 2.0.0) - Copyright © 2006-2008 by JoomlaWorks
Þú ert hér / You are here: Home

Þorskurinn skilar þirðjungi

Aflaverðmæti þorskafurða nam 36,9 milljörðum árið 2009. Heildaraflaverðmæti var 115 milljarðar svo 32 prósent þess liggja í þorskinum.  Þorskur1

Á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda segir að aflaverðmætið hafi lækkað um 2,8 prósent að raungildi, þ.e. á föstu verðlagi.

Á árinu 2009 voru veidd 189 þúsund tonn af þorski sem er 38 þúsund tonnum meira en 2008. Aflaverðmætið jókst um 4,7 milljarða sem þýðir 20 prósent raunverðslækkun.

Sjóstangveiðimót í Grindavík

Sjóstangveiðimót var haldið í Grindavík dagana 24/6 - 27/6 2010
í samvinnu við Stangveiðifélag Grindavíkur.      IMG_2071
                                                  

Mótið var sett hér í Stakkavík 24. júní.  Xperience Fish bauð upp á fiskisúpu, brauð og heimildarmynd um fiskveiðar.
Stakkavík sá um matarbakka, smurt brauð, vatn og gos handa mótsfólkinu. Var farið með það kl.05:30 á bryggjuna þar sem bátarnir voru, bæði Föstudag og Laugardag.
Keppendur voru 24, 20 karlar og 4 konur. Sex bátar fluttu veiðimenn út á miðin en Stakkavík var einn helsti bakhjarl mótsins og var Hermann Ólafsson verðlaunaður fyrir sitt framlag. Þátttakendur voru yfir sig ánægðir með móttökurnar í Grindavík.
Nánar...

Frábær helgi yfirstaðin

Sjómannahelginni lauk á Sunnudagskvöldinu 06.06.2010 og gekk hún von framar.

Veðrið var gott og tjaldstæðin full eins og í fyrra. Við í Stakkavík opnuðum Xperience Fish þessa helgi.
Fólk fékk tækifæri til að kaupa sér fiskisúpu, salatbar og grillaðar samlokur.
Heimildarmynd um fiskveiðar var sýnd á staðnum og gekk þetta mjög vel og var mikið að gera.
Rúmlega 100 manns skrifuðu í gestabókina.
Við hjá Stakkavík erum mjög ánægð með þessa frumraun okkar
og erum við vel spennt fyrir því að gera þetta aftur að ári liðnu.
Takk fyrir komuna og við hlökkum til að sjá ykkur aftur. Smile

Sjóarinn Síkáti!

Grindavik-5

Sjóarinn Síkáti - Dagskrá : www.grindavik.is/sjoarinnsikati

Verið hjartanlega velkomin og Góða skemmtun! Cool

 

Stakkavík fékk skemmtilega heimsókn í sumarblíðunni!

Hressir og kátir krakkar í 4. Bekk Grunnskóla Grindavíkur kíktu í heimsókn.
Mikil spenna var í hópnum en um 50 börn mættu.

DSC_0117-3

Grindavík er ein af Íslandsperlunum

Um síðustu helgi var opnuð ferðasýningin Íslandsperlur í Perlunni. Að sýningunni stóðu markaðsstofur landshlutanna í ferðaþjónustu, Ferðaþjónusta bænda, Opinn landbúnaður og Beint frá býli. Á sýningunni var gestum boðið að IMG_433smallganga hringinn í kringum landið og fá smjörþefinn af því besta sem ferðalöngum stendur til boða í sumar. Suðurnesin voru með einn bás og vakti hann talsverða athygli.

Það var mikill straumur fólks í gegnum básinn en þar voru Grindvísk ferðaþjónustufyrirtæki afar áberandi. Vakti Stakkavík mikla og jákvæða athygli fyrir framlag sitt "Xperience Fish".  Leiðsögumenn eru einnig mjög spenntir enda um algjöra nýjung að ræða í ferðamálabransanum.
Myndin var tekin í Suðurnesjabásnum.

Eldgosið hefur líka áhrif á fiskvinnslu

Gosið hefur áhrif víða í heiminum!

Stakkavík hefur líka fundið fyrir áhrifum þess og í gær var fyrsti virki frí dagurinn á árinu.
Fiskvinnslan hefur einnig legið niðri í allan dag því ekki er hægt að flytja fisk úr landi.

En stærsti hluti af okkar afurðum eru fluttar úr landi með flugi!

 

eldgosi 2010Eldgos1 

 

Fleiri greinar...

Síða 1 af 2

Joomlart