
Hjá Stakkavík mætast fiskiðnaður og ferðaþjónusta.
Ferðamenn mjög spenntir að kynnast fiskiðnaði.
Við vorum að bæta starfsmannaaðstöðuna og sú hugmynd kviknaði í kjölfarið að byggja í leiðinni sal sem gæti tekið 60 manns í sæti, og frá þessum sal liggur síðan útsýnispallur þar sem hægt er að fylgjast með allri vinnslunni,“ segir Hermann Ólafsson framkvæmdastjóri um spennandi ferðaþjónustutengt verkefni hjá fiskvinnslufyrirtækinu Stakkavík í Grindavík.
„Hugmyndin er að bjóða upp á þá þjónustu að geta tekið á móti gestum og sýnt þeim hvernig unnið er úr fiskinum,“ segir Hermann. „Þá yrði tekið á móti þeim, jafnvel boðið upp á léttar veitingar, og sýnt myndband þar sem farið er yfir allt ferlið og handtökin í vinnslusalnum. Erlendur Bogason kafari á Akureyri hefur útvegað myndefni þar sem fylgjast má með fiskinum í sjónum og Viðar Oddgeirsson úr Hafnarfirði tók upptökuvélina með í róður á bát frá Stakkavík. Allt verður þetta klippt saman og búin til 12-15 mínútna mynd á íslensku, ensku og þýsku, sem sýnir allt frá því að línan er lögð og þorskurinn bítur á agnið þar til hann er kominn flakaður og ferskur í kassa á leið á erlenda markaði.“
Á góðum stað fyrir gesti
Hermann segir að ýmsir stækkunarmöguleikar kunni að bjóðast: „T.d. með minjagripasölu eða öðrum fróðleik um sjávariðnaðinn. Það fer þá eftir viðbrögðunum hvað við gerum þegar fram líða stundir,“ segir hann en þessi nýjasta viðbót við menningarflóruna í Grindavík er aðeins steinsnar frá Saltfisksetrinu vinsæla. „Við njótum góðs af því að vera í leiðinni fyrir ferðamenn sem fara t.d. í Bláa lónið eða Krísuvík. Nú þegar er algengt að sjá ferðamenn á ferð um hafnarsvæðið og verða þeir iðulega stóreygir þegar þeir fá að handfjatla fiskinn.“
Hermann bendir á að fiskiðnaðurinn sé heillandi og framandi heimur í huga margra erlendra ferðamanna en ekki síður innfæddra sem margir hafa aldrei komið nálægt fiskvinnslu: „Vandinn er þó sá að heilbrigðisreglur eru orðnar svo strangar að ekki má hleypa gestum inn í vinnslusalinn,“ segir hann. „Það er mikið líf í salnum og fá gestir að virða fyrir sér frá útsýnispallinum allt ferlið, sjá bæði hvernig fiskurinn er flakaður, roðflettur og skorinn, pakkaður og settur á bretti.“
Á erindi við börnin
Hermann segir þetta ferli stórmerkilegt í augum ferðamannsins en eigi líka mikið erindi við íslenska æsku: „Við vonumst til að fá hingað hópa af skólabörnum, sem flest hafa haft sáralítil kynni af þessari undirstöðuatvinnugrein.“
Ekki hvað síst segir Hermann mikilvægt að kynna sjávarútveginn og fræða almenning um þá vinnu, hugvit og verðmætasköpun sem þar fer fram. „Það er mikil vinna á bak við það að draga fisk úr sjó og koma honum í hendur neytenda. Allt frá fólkinu í landi sem beitir línuna, til sjómannanna sem fara til veiða í öllum veðrum, til vökulla starfsmanna sem af fimi meðhöndla fiskinn,“ segir hann. „Ég er sérstaklega hræddur um að unga kynslóðin sé lítið að spá í þetta.“
Sýningaraðstaðan mun verða opnuð með vorinu og verður opin meðan starfsemi er í húsinu frá 7 til 16 á virkum dögum og eftir samkomulagi á öðrum tímum.
